Stafræna markaðsstofan Pikk selur þjónustu sína á föstu mánaðarverði og gefur viðskiptavinum rauntímaaðgang að öllum tölum úr eigin herferðum.

Stafræna markaðsstofan Pikk hefur byggt starfsemi sína upp í kringum viðskiptavinahóp sem íslenskar auglýsingastofur hafa lengi sinnt takmarkað: lítil og meðalstór fyrirtæki með fáa starfsmenn og enga markaðsdeild. Á meðal viðskiptavina eru veitingastaðir, verktakar, verslanir, framleiðendur, bílaleigur og þjónustufyrirtæki.

Þjónustan er seld á föstu mánaðarverði sem hefst í 44.900 krónum, án langtímasamninga, tímagjalds eða uppsetningargjalds. Birkir Guðsteinsson, eigandi Pikk, segir verðlagninguna vera meðvitaða ákvörðun frekar en tilboð.

„Lítið fyrirtæki hefur ekki efni á að taka áhættu á markaðsþjónustu sem það veit ekki hvað kostar. Þegar verðið er fast og uppsagnarfrestur stuttur er ákvörðunin einföld, og þá loksins verður þetta valkostur fyrir fyrirtæki sem hefðu annars ekki gert neitt.“

Samhliða þessu hefur stofan þróað eigið vinnusvæði þar sem viðskiptavinir sjá lifandi tölur úr sínum herferðum hvenær sem er sólarhringsins, ásamt yfirliti yfir þá vinnu sem unnin hefur verið fyrir þá og hvenær.

„Algengasta ástæðan fyrir því að lítil fyrirtæki hætta hjá markaðsstofu er ekki sú að árangurinn sé slæmur, heldur að þau sjá hann hvergi. Reikningurinn kemur og fyrirtækið veit ekki hvað það er að borga fyrir,“ segir Birkir.

Þá leggur stofan áherslu á beint aðgengi. Viðskiptavinir eiga samskipti við þann sem vinnur verkið frekar en tengilið, og geta sent inn beiðnir beint í gegnum vinnusvæðið.

Auk umsjónar með auglýsingum á Meta og Google býður Pikk upp á efnisgerð fyrir samfélagsmiðla sem og ljósmynda- og myndbandaþjónustu.